
Snæfellstúlkur sigruðu sinn fyrsta leik á tímbilinu í kvöld þegar þær lögðu Val 59-63 í jöfnum og skemmtilegum leik. Valur hafði yfir eftir fyrsta hluta 17-12 en Snæfell létu ekki buga sig strax í byrjun og jöfnuðu 19-19 og náðu að vinna annan leikhluta 16-17 en Valur leiddi í leikhléi 33-29. Kristen Green ásamt þeim Gunnarsdætrum Berglindi og Gunnhildi voru atkvæðamestar í fyrri hálfleik.
Í stöðunni 37-35 skellti Sara Sædal einum ísköldum þrist og setti stöðuna í 37-38 þá var tónninn gefinn fyrir góðann kafla þar sem Snæfell komst í 39-45 og unnu þær þriðja hluta 8-16. Valur náði að rétta úr kútnum í fjórða hluta og jafna 50-50 og voru liðin að skiptast á forystuhlutverkinu út síðasta hlutann en þegar jafnt var 56-56 komust Valsstúlkur aðeins þremur stigum betur 59-56 og Snæfell tóku völdin síðstu tvær mínútur leiksins og kláruðu leikinn 59-63.
Kristen Green var með 16 stig og 5 stoðs. Gunnhildur 14 stig. Berglind 13 stig og 5 frák. Hrafnhildur og Sara Sædal 7 stig hvor. Björg Guðrún 3 stig. Rósa 2 stig. Unnur Lára 1 stig. Helga Hjördís kom inn af bekknum og Ellen, Erna og Hildur Björg spiluðu ekki í þetta sinn. Stórkostlegur sigur hjá stórkostlegum hóp í fyrsta leik.
Nánari tölfræði er að finna á tölfræðisíðu KKÍ