a / A+
 
 

Forsíđa > Fréttir > Drengjaflokkur á sigurbraut

Smelltu hér til ađ kynna ţér Aga- og siđareglur Snćfells
30. október 2009
Drengjaflokkur á sigurbraut

 

Strákarnir í sameinuđu liđi Snćfells og Skallagríms sigruđu Breiđablik 83-72 í spennandi leik sem fram fór í Fjárhúsinu.  Í hálfleik leiddu Blikar 33-29 en međ ţolinmćđi sigu vestlendingar framúr og tryggđu sér ţriđja sigurinn í röđ.

 

Heimamenn byrjuđu leikinn vel og leiddu 5-0, en sprćkir strákar úr Kópavogi komust yfir 7-11 og 9-15.  Kristján Pétur lék manna best á vellinum og skilađi Snćfell/Skallagrím yfir 16-15 eftir fyrsta fjórđung.  Í öđrum leikhluta gekk Snćfell/Skallagrím illa ađ skora og sást ađ liđiđ vantar alla samćfingu.  Gústav Davíđsson hjá Breiđablik vakti athylgi manna og lék mjög vel fyrir gestina.  Blikar komust yfir 24-33 en fimm síđustu stig annars leikhluta voru heimamanna og stađan 29-33.

 

Í síđari hálfleik breyttu heimamenn um vörn og voru ţađ helst langskotin sem rötuđu rétta leiđ hjá Blikum en ţriđji leikhluti var mjög jafn.  Trausti Eiríks eignađi sér fráköstin í leiknum og endađi međ 18 slík.  7 stig frá Agli vógu ţungt semog 8 stig frá Sigurđi Ţórarinssyni.  Ţegar um ein mínúta var eftir af ţriđja leikhluta kom Hlynur Hreinsson gríđarlega sterkur inn af bekknum og skorađi fjögur síđustu stig leikhlutans og kom heimamönnum yfir 53-49.  Í fjórđa leikhluta komust Blikar á ný yfir og skiptust liđin á ađ leiđa alls 12 sinnum í leiknum.  Blikar voru yfir 61-63 ţegar ađ Birgir Ţór Sverris jafnađi leikinn međ góđu skoti og í kjölfariđ fór Egill Egilsson í gang, kappinn skorađi 9 stig á mjög skömmum tíma og Snćfell/Skallagrímur voru komnir í 77-63.  Lokatölur 83-72.

 

Góđur sigur hjá Snćfell/Skallagrím sem eru međ fullt hús stiga eftir ţrjá leiki.  Liđiđ leikur um helgina tvo leiki, á laugardag leikur liđiđ gegn KFÍ í Borgarnesi og á sunnudag leika strákarnir gegn KR í DHL-Höllinni.

 

Stigaskor leikmanna: Kristján Pétur Andrésson 19 stig og 9 fráköst, Egill Egilsson 18 stig og 8 fráköst, Sigurđur Ţórarinsson 18 stig, Hlynur Hreinsson 9 stig, Birgir Ţór Sverirrsson 6 stig, Guđni Sumarliđason 5 stig, Trausti Eiríksson 4 stig og 18 fráköst, Ásmundur Ţrastarson 2 stig og 3 stođsendingar, og Sigursteinn Hálfdánarson 2 stig.  Elfar Ólafsson, Andrés Kristjánsson og Birgir Pétursson léku allir en náđu ekki ađ skora.

 

Tölfrćđi leiksins



 


Ætlar þú að æfa með Snæfelli í vetur?

Nei
Er að fara að byrja