Kvennaliđ Snćfells sigrađi liđ Vals í Iceland express deildinni 58-83 í Vodafonehöllinni í kvöld. Međ sigrinum fara Snćfellsstúlkur inn í úrslitakeppnina í fyrsta skipti á međan ţađ kom í hlut Valsstúlkna ađ fara niđur um deild í ár. KR og Hamar sem eru í 1. og 2. sćti deildarinnar sitja hjá og fara beint í undanúrslit en Snćfell mćtir ţá 3ja sćtinu sem er Keflavík í umspili um undanúrslitasćti. Snćfell varđ ađ vinna leikinn og vona ađ Haukar ynnu Njarđvík til ađ allt gengi upp sem ţađ gerđi.

Fyrsti hluti var mjög jafn og endađi 18-15 fyrir Snćfell. Annar hluti var jafn framan af og var stađan 25-25 ţegar Valur komst yfir 27-25 en ţá setti Snćfell stopp á allt hjá Val og settu 8 stig í röđ og leiddu í hálfleik 27-33.
Eftir ţennan sprett í lok annars hluta var tóninn settur og Snćfellsstúlkur litu aldrei til baka og leiddu allann leikinn og juku forskotiđ meira og meira. Stađan eftir 3ja hluta var 44-56 og svo tóku ţćr fjórđa hluta 14-27 og kláruđu leikinn sannfćrandi 58-83.

Sherell Hobbs var stigahćst međ 30 stig og 7 stolna bolta. Gunnhildur spilađi einnig vel međ 16 stig og setti niđur 3 af 4 ţristum og var međ 24 framlagsstig. Hrafnhildur Sćvars átti flottann dag međ 12 stig og 7 frákös. Björg Guđrún setti 10 stig sýndi töffaratakta ţegar hún kom Snćfelli yfir 27-28 međ einum af ţremur ţristum sem hún setti niđur og gaf tóninn fyrir ţađ sem á eftir kom. Helga Hjördís skorađi 6 stig og tók 6 fráköst. Sara Sćdal setti 3 stig og tók 7 fráköst. Rósa, Unnur og Hildur voru međ 2 stig hver og Rósa tók 5 fráköst og Unnur 4 fráköst. Sara Mjöll skorađi ekki en spilađi í leiknum.
Glćsileg frammistađa hjá stúlkunum sem mćta Keflavík á laugardaginn 6. mars í úrslitakeppninni í Keflavík.

Símon B. Hjaltalín
Mynd: Ţorsteinn Eyţórsson
