Auðveldur sigur í kvöld

Stelpurnar í mfl. kvk. léku hér heima í kvöld gegn Kópavogstúttunum í Breiðabliki. Liðið okkar var ekki fullskipað í kvöld en það hafði þó engin slæm áhrif á gang leiksins og allir leikmenn fengu að spreyta sig í kvöld. Gaman af því. Það skal þó tekið fram að svipuð staða var á leikmannahópi Blika. Þeir höfðu einungis einum varamanni fram að tefla á meðan við vorum með tvo. Okkar stelpur voru yfir allan leikinn. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 19-4. Í öðrum leikhluta breyttu gestirnir yfir í svæðisvörn en það stoppaði ekki stelpurnar okkar. Þær juku muninn jafnt og þétt og eftir annan leikhluta var staðan orðin 44-13 Snæfell í vil.

Eftir hálfeik héldu þær áfram að bæta við stigaskorið og spiluðu þær ágætlega saman, létu boltann rúlla og fengu því yfirleitt gott opið skot sem þær nýttu vel. Einnig skorðu þær töluvert úr hraðaupphlaupum. Lokatölur í kvöld 86-28. Snæfellsstelpur verma ennþá toppsætið en Blikar sitja á botni deildarinnar.