Deildarmeistarar í 1. deild kvk.- til hamingju Snæfellsstelpur

Í gær spiluðu stelpurnar sinn næstsíðasta leik í vetur, gegn Þór frá Akureyri. Okkar stelpur unnu leikinn auðveldlega 84-42. Í leikslok afhenti formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, þeim deildarmeistarabikarinn. Síðast leikur stelpnanna í vestur verður í Njarðvík 28. mars nk. Stelpurnar eru staðráðnar að hætta ekki núna því ef þær vinna þann leik þá klára þær deildina taplausar. Þær segja líka að það sé margt sem þær geta gert betur sem þær hafa ekki sýnt í vetur og ætla þær sér að sýna það í síðasta leiknum svo það sjáist að þær eigi svo sannarlega heima á meðal þeirra bestu. Enn og aftur til hamingju stelpur með glæsilegan árangur.