Snæfellsstelpur í Mónakó

Snæfell á þrjár stelpur í U-16 ára landsliði Íslands sem nú er að keppa i Mónakó í C-deild Evrópukeppninnar. Þetta eru þær Berglind Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Sævarsdóttir og Sara Magnúsdóttir og þær komu allar við sögu í dag þegar Ísland vann stórsigur á Gíbraltar 108-24.
Sara var með 10 stig og 4 fráköst, Berglind með 6 stig og 10 fráköst og Hrafnhildur með 5 stig og 3 fráköst.

Tölfræði leiksins gegn Gíbraltar má sjá hér.  Fylgjast má með leikjum Íslands á heimasíðu Evrópukeppninnar. Ísland mætir næst Albönum á morgun kl.14 að íslenskum tíma.