Miðaverð á heimaleiki Snæfells veturinn 2008-2009

Ákveðið var á formannafundi KKÍ sem haldinn var fyrir nokkru að halda miðaverði óbreyttu í vetur frá því í fyrra á alla leiki í Iceland Express-deildum karla og kvenna. Miðaverð verður því áfram 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 fyrir börn yngri en 15 ára og frítt er fyrir börn yngri en 5 ára. Að teknu tilliti til þessa verður gjaldskrá Snæfells á leiki í vetur eftirfarandi:

Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 500,-

Fullorðnir kr. 1000,-

Nemendur 7. – 10. bekk kr. 500,-

Nemendur í 6. bekk og yngri fá frítt inn.