Snæfellsstúlkur að meika það.

Bara á ekki til orð af gleði eftir að hafa fylgst með leiknum hjá Snæfellsstúlkum í kvöld en hér eru samt nokkur sem ég bara varð að setja inn. Stúlkurnar í Snæfell eru heldur betur að herða sig saman og unnu í kvöld sinn þriðja leik í deildinni og sinn annan á Grindavík 68-81. Snæfellsstúlkur fara þá með 6 stig inní B-hlutann sem eru neðri 4 liðin í deildinni ásamt Val, Grindavík og Fjölni.

Snæfell var yfir allann tímann og gáfu aldrei eftir í leiknum. Stúlkurnar eru að finna þefinn af sigurleikjum og glæsilegt að sjá þær eflast og skora meira svo ekki sé talað um að halda Grindavík undir sér á þeirra heimavelli og vinna alla leikhlutana.