KR stúlkur tveimur númerum of stórar

Snæfellsstúlkurnar fóru í vesturbæinn og mættu sterku liði KR sem spáð var 1. sæti deildarinnar. KR byrjaði með látum og komust í 16-2 og leiddu út úr fyrsta hluta 20-8. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Signý Hermannsdóttir fóru fyrir sínu liði.

Staðan í hálfleik var 37-14 og voru KR stúlkur einfaldlega tveimur númerum of stórar og þær héldu Snæfelli aftur undir 10 stigum í öðrum hluta sem fór 17-6.