Egill frábær í góðum sigri á Val/ÍR á heimavelli.

Strákarnir léku án Hlyn Hreinssonar sem er sennilega með slitið liðband í ökkla eftir að hafa snúið sig gegn Haukum í drengjaflokki.  Snjólfur Björnsson var að leika með 11. flokki í borgarnesi og lék því ekki með heldur.

Guðni Sumarliðason opnaði leikinn með tveimur þéttum þristum að hætti hússins og gaf tóninn í upphafi, Snæfell/Skallagrímur leiddu 12-8 en varnarfráköstin voru ekki til staðar hjá heimamönnum og það nýttu Vals/ÍR-ingar sér vel og staðan eftir fyrsta leikhluta 16-15 heimamönnum í vil……