Snæfell bikarmeistari Unglingaflokks kvenna.

Snæfellsstúlkurnar í unglingaflokki gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Keflavík í úrslitaleik bikarsins 64-54. Glæsilegur árangur hjá þeim.

Leikurinn hófst jafn og hressandi og komust Keflavík strax í 2-5. Snæfellsstúlkur voru þó ekkert að í slökun og komust fljótt 10-7 og voru ekkert á því að gefa neitt eftir og hungraðar í gullið. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta hluta og var jafnt undir lokin 17-17 eftir að Ellen setti niður víti. Sara Mjöll kom svo Snæfelli yfir 19-17 þegar 2 mín voru eftir en ekkert var skorað eftir það í hlutanum og Snæfell með forystu…..

[mynd]