Snæfell tryggt í topp fjóra

Þær ótrúlega mögnuðu stúlkur í Snæfelli unnu mikilvægann sigur í samt slökum leik beggja liða, Snæfellsstúlkurnar gegn Keflavík 59-61, sem eru enn að reyna að hala inn einn sigur fyrir deildameistaratitli. Snæfell er þá í 3ja sæti og getur haldið því tryggu fyrir úrlitakeppnina með sigri á Fjölni á laugardaginn næsta í síðustu umferð Iceland express deildar kvenna.

 

Slök skotnýing einkenndi liðin í kvöld og einhver þreyta í loftinu en hjá Snæfelli var Hildur Sigurðardóttir með 16 stig og tók 10 fráköst en Jordan Murphree setti 12 stig og tók 13 fráköst og stal 4 boltum. Hildur Björg 11 stig og 8 fráköst. Kieraah 8 stig og 10 fraköst. Helga Hjördís 8 stig. Alda Leif 4 stig og 4 stoðsendingar. Rósa Kristín 2 stig. Björg, Ellen, Berglind, Sara og Aníta skoruðu ekki….

 

Tölfræði leiksins

Umfjöllun af Karfan.is

Ingi Þór eftir leik á KarfanTV

Falur Harðarson eftir leik á KarfanTv