Kieraah Marlow kemur aftur.
Kieraah L. Marlow semur aftur við Snæfell fyrir leiktíðina 2012-2013 í Domino´s deild kvenna i körfu.
Kieraah stóð sig vel með liðinu á síðasta tímabili og í 32 leikjum skoraði hún 21 stig, tók 9.7 fráköst, gaf 3.5 stoðsendingu og var með 24.6 framlagsstig að meðaltali í leik.
Ingi Þór var virkilega ánægður með lendinguna:
„Ég er mjög ánægður að hafa samið á ný við Kieraah, hún spilaði vel fyrir okkur og ég er sannfærður um að hún eigi eftir að gera enn betur á næstu leiktíð. Hún þekkir betur umhverfið og við vitum hvað við erum að fá. Hún tekur pláss í litaða svæðinu og síðan var hún allan veturinn að bæta leik sinn.“
Reiknað er með að Kieraah komi til landsins í byrjun September.
Tags: Fréttir