Asim McQueen bætist við leikmannahóp karla í körfu.

Asim McQueen lék með Tulane háskólanum þar sem hann var með 7.7 stig að meðaltali í leik og 4.6 fráköst. Asim er kröftugur leikmaður sem á eftir að styrkja lið Snæfells undir körfunni. Asim lék eftir háskóla í Argentínu þar sem hann var með 15 stig og 7 fráköst í 1. deildinni eftir að hafa verið með 7 stig og 3.4 fráköst í efstu deild. Það verður spennandi að fylgjast með kröftum Asim í Snæfellsbúningnum á næsta tímabili.

Ingi Þór þjálfari sagði í stuttu spjalli við heimasíðuna: „Asim á eftir að styrkja Snæfellsliðið undir körfunni, en í fyrra vantaði okkur örlítið uppá þá stöðu. Asim er stór og stæðilegur leikmaður sem lék síðustu tvö ár í Argentínu. Deildarkeppnin þar er mjög sterk en hann vill núna opna veg sinn inní evrópskan körfubolta, kappinn er fjölhæfur á báðum endum vallarins og því verður spennandi að bjóða hann velkominn í Hólminn.“

Von er á kappanum í byrjun september eins og Jay Threatt sem Snæfell samdi við fyrr í júlí.

[mynd]

[mynd]

[mynd]