Lengjubikarriðlarnir klárir

Dregið hefur verið í riðla fyrir Lengjubikarinn sem verður með sama hætti og í síðasta tímabil. Bæði karla og kvennaliðin okkar voru í öðrum styrkleikaflokki af 4 hjá körlum og 5 hjá konum.

 

Hjá konunum eru tveir riðlar og er Snæfell í A-riðli með Haukum, Val, Fjölni og Stjörnunni. Leikið verður í Lengjubikar kvenna frá 9. september og úrslit 27. september áður en deildarkeppni hefst í Domino´s deildinni.

Hjá körlunum eru 4 riðlar og er Snæfell í B-riðli með KR, KFÍ og Hamri. Leikið verður frá 14. október samhliða deildarkeppni í Dominio´s deildinni og eru „Final 4“ 23. og 24. nóvember……….

Lengjubikar kvenna:

 

Í Lengjubikar kvenna eru 10 lið. Öll átta liðin úr Domino´s deild kvenna og tvö lið úr fyrstu deild kvenna. Liðin eru eru dregin í tvo riðla en eitt lið er dregið úr hverjum styrkleikaflokki og leika öll liðin innbyrðis í einfaldri umferð. Efsta lið hvors riðils fer í úrslitaleikinn.

Fyrsti leikdagur er 9. september en úrslitaleikurinn verður fimmtudaginn 27. september.

Liðin eftir styrkleikaflokkum.
1. styrkleikaflokkur: Njarðvík og Haukar
2. styrkleikaflokkur: Keflavík og Snæfell
3. styrkleikaflokkur: KR og Valur
4. styrkleikaflokkur: Fjölnir og Grindavík
5. styrkleikaflokkur: Hamar og Stjarnan

Riðlanir:

A
1. Haukar
2. Snæfell
3. Valur
4. Fjölnir
5. Hamar

B
1. Njarðvík
2. Keflavík
3. KR
4. Grindavík
5. Stjarnan

 

Lengjubikar karla:

 

Í Lengjubikar karla eru 16 lið. Öll 12 liðin úr Domino´s deild karla og fjögur lið úr 1. deild karla. Liðin eru dregið í fjóra riðla, eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki. Leikin er tvöföld umferð. Efsta lið hvers riðils fer í undanúrslit eða Final Four.

Fyrsti leikdagur er sunnudagurinn 14. október en úrslitin eða Final Four verða föstudaginn og laugardaginn 23. og 24. nóvember.

Liðin eftir styrkleikaflokkum.
1. styrkleikaflokkur: Grindavík, KR, Þór Þ. og Stjarnan
2. styrkleikaflokkur: Keflavík, Snæfell, Tindastóll og Njarðvík
3. styrkleikaflokkur: ÍR, Fjölnir, KFÍ og Skallagrímur
4. styrkleikaflokkur: Haukar, Valur, Hamar og Breiðablik

Riðlarnir:

A
1. Grindavík
2. Keflavík
3. Skallagrímur
4. Haukar

B
1. KR
2. Snæfell
3. KFÍ
4. Hamar

C
1. Stjarnan
2. Tindastóll
3. Fjölnir
4. Breiðablik

D
1. Þór Þ.
2. Njarðvík
3. ÍR
4. Valur