Snæfell í undanúrslit Poweradebikarsins

Snæfell, Stjarnan og Grindavík eru í pottinum fyrir undanúrslitin en Keflavík og Njarðvík eiga eftir að spila sinn leik. Það verða því hörkuleikir í 4 liða úrslitum Poweradebikarsins.

 

Snæfell sigraði Val í Vodafonehöllinni, 100-85 og komust áfram án erfiðis.

 

Valur-Snæfell 85-100 (12-27, 26-24, 22-26, 25-23)  

 

Valur: Chris Woods 35/8 fráköst, Birgir Björn Pétursson 15/7 fráköst, Benedikt Blöndal 14, Ragnar Gylfason 12, Atli Rafn Hreinsson 5, Rúnar Ingi Erlingsson 4, Sigurður Skúli Sigurgeirsson 0, Jens Guðmundsson 0, Bjarni Geir Gunnarsson 0, Bergur Ástráðsson 0, Benedikt Skúlason 0, Þorgrímur Guðni Björnsson 0.    

 

Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 21, Jay Threatt 17/7 fráköst/8 stoðsendingar, Hafþór Ingi Gunnarsson 16, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 15, Sigurður Á. Þorvaldsson 10, Sveinn Arnar Davíðsson 10, Ólafur Torfason 5, Stefán Karel Torfason 4, Asim McQueen 2/4 fráköst, Kristinn Einar Guðmundsson 0, Óttar Sigurðsson 0, Jóhann Kristófer Sævarsson 0.