Nonni Mæju bestur í fyrri hluta Domino´s deildar karla
Nonni Mæju er í úrvalsliði fyrri hluta Domino´s deildar og var útnefndur besti leikmaðurinn. Jón Ólafur er vel að útnefningunni kominn með 22,1 stig, 9,1 frákast og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Jóni hefur verið heit höndin í fyrri hluta mótsins með 60,8% þriggja stiga nýtingu sem á góðri íslensku er rosalegt!
Úrvalslið Dominos deildar karla · Fyrri hluti 2012-2013
Justin Shouse · Stjarnan
Samuel Zeglinski · Grindavík
Darrel Lewis · Keflavík
Marvin Valdimarsson · Stjarnan
Jón Ólafur Jónsson · Snæfell
Besti leikmaðurinn:
Jón Ólafur Jónsson · Snæfell
Dugnaðarforkurinn:
Sigmar Egilsson · Skallagrímur
Besti þjálfarinn:
Benedikt Guðmundsson · Þór Þorlákshöfn
Besti dómarinn í Dominos deild karla og kvenna:
Sigmundur Már Herbertsson
Tags: Fréttir