Barátta um 2. sætið framundan

Keflvíkingar eru deildarmeistarar í Domino´s deild kvenna eftir spennusigur gegn Snæfell í Toyota-höllinni í kvöld. Lokatölur voru 71-64 Keflavík í vil en það voru þær Pálína María Gunnlaugsdóttir og Birna Valgarðsdóttir sem veittu deildarmeistaratitlinum viðtöku.
 

Hólmarar léku án Öldu Leifar Jónsdóttur í kvöld vegna meiðsla en það aftraði þeim ekki í því að hefja leikinn 15-23 og þannig stóðu leikar að loknum fyrsta leikhluta.
 

Keflvíkingar réttu hlut sinn í öðrum leikhluta og unnu hann 19-16 en Hólmarar leiddu því 34-39 í leikhléi…..

Keflvíkingar eru deildarmeistarar í Domino´s deild kvenna eftir spennusigur gegn Snæfell í Toyota-höllinni í kvöld. Lokatölur voru 71-64 Keflavík í vil en það voru þær Pálína María Gunnlaugsdóttir og Birna Valgarðsdóttir sem veittu deildarmeistaratitlinum viðtöku.
 

Hólmarar léku án Öldu Leifar Jónsdóttur í kvöld vegna meiðsla en það aftraði þeim ekki í því að hefja leikinn 15-23 og þannig stóðu leikar að loknum fyrsta leikhluta.
 

Keflvíkingar réttu hlut sinn í öðrum leikhluta og unnu hann 19-16 en Hólmarar leiddu því 34-39 í leikhléi. Í síðari hálfleik mættu Keflvíkingar grimmar á völlinn, unnu þriðja leikhluta 17-9 og þegar allt var komið í járn setti Ingunn Embla Kristínardóttir niður risavaxinn þrist en Hólmarar bitu frá sér á nýjan leik. Ingunn breytti stöðunni í 65-60 með þristinum en Hólmarar voru eldsnöggar að minnka muninn aftur í 65-64. Lengra komust þær ekki og Keflvíkingar kláruðu leikinn á vítalínunni en þaðan komu sex síðustu stig þeirra.
 

Jessica Jenkins var stigahæst hjá Keflavík í kvöld með 21 stig og 4 fráköst og þær Pálína Gunnlaugsdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir bættu báðar við 12 stigum. Hjá Snæfell var Hildur Sigurðardóttir með 23 stig og 7 fráköst og Kieraah Marlow gerði 16 stig og tók 9 fráköst.
 

Keflavík er því deildarmeistarar eftir að hafa leitt deildina allt mótið og ljóst að þær verða með heimaleikjaréttinn alla úrslitakeppnina svo fremi sem þær eru á lífi í þeirri keppni. KR minnkaði mun Snæfells niður í fjögur stig í kvöld og geta enn náð 2. sæti af Hólmurum.

 
Tölfræði leiksins