Slitið krossband hjá Öldu Leif

Alda Leif Jónsdóttir leikmaður Snæfells er með slitið krossband á vinstra hné en þetta kom í ljós eftir segulómskoðun.  Alda Leif heldur undir hnífinn í byrjun maí og ætlar sér að koma inní næsta tímabil ef allt gengur að óskum.

 

Alda Leif skyldi eftir sig stórt skarð í Snæfellsliðinu en hún var með 10 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar í leik í vetur.

 

Alda Leif hafði áður fyrr á ferli sínum slitið krossband á hægra hné og var hún með rof í örvef að plaga hana í allan vetur.  Alda Leif sleit svo krossbandið á æfingu þegar hún var að gera sig tilbúna fyrir undanúrslitin á íslandsmótinu í Dominosdeildinni.