Travis Cohn til liðs við Snæfell

Travis Cohn til liðs við Snæfell

KKD. Snæfells hafa ráðið nýjan bandarískan leikmann, nýji leikmaðurinn heitir Travis Cohn og lék með Jacksonville háskólanum þar sem hann skoraði 10 stig að meðaltali, tók 2.9 fráköst og gaf um 1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Travis er svokallaður „combo“ bakvörður en hann leikur bæði sem leikstjórnandi og skotbakvörður. Kappinn er um 187cm á hæð og mikill íþróttamaður.

Von er á kappanum fyrir leikinn gegn Þór Þorlákshöfn sem fram fer föstudaginn 10. janúar klukkan 19:15.

Hérna er myndbrot af kappanum:

Hérna má einnig sjá frétt af visir.is:
http://visir.is/nyr-kani-snaefellinga-kann-svo-sannarlega-ad-troda—myndband/article/2014140109407