Myndir frá Lokahófi KKD. Snæfells í gær

Myndir frá Lokahófi KKD. Snæfells í gær

Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og stuðningsfólk Snæfells átti góða stund í gær á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Snæfells.

Boðið var upp á heilsteikt lambalæri með öllu tilheyrandi, verðlauna afhendingar, skemmtiatriði og ball með Hljómsveitinni Meðlæti.

Allt var þetta til fyrirmyndar og eiga þeir sem tóku þátt í skipulagningu stórt hrós skilið. Umgjörðin í kringum körfuboltann er að verða sú allra besta á landinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af herlegheitunum.
Margir voru heiðraðir eins og sjá má.