Undirskriftir í Hólminum í dag

Undirskriftir í Hólminum í dag

Snæfell var að styrkja sig gífurlega í körfuboltanum í dag. Tvær ungar stúlkur úr Ásklifinu skrifuðu undir ásamt Helgu Hjördísi Björgvinsdóttur en hún var gríðarlega mikilvæg þegar Snæfell vann Íslandsmeistaratitilinn í ár.

Gunnhildur Gunnarsdóttir og María Björnsdóttir skrifuðu undir í dag og er það mikið gleðiefni að fá þær stöllur aftur í rétta rauða litinn.

Svo skrifaði annar úr Ásklifinu undir hjá karlaliðinu, Snjólfur Björnsson mun spila með Snæfell á næstu leiktíð og binda þjálfarar liðsins miklar vonir við þennan bráðefnilega og mikla íþróttamann.

Já það verður gaman í Ásklifinu í kvöld eins og alla daga!

Við óskum þeim Gunnhildi, Helgu, Maríu og Snjólf kærlega til hamingju með nýja samninginn.

Áfram Snæfell