ÍSLAND Á EM 2015!

ÍSLAND Á EM 2015!

Eins og alþjóð veit eru strákarnir okkar búnir að standa í ströngu núna í sumar er þeir tóku þátt í undankeppni fyrir Evrópumeistaramótið.

Við erum að átta okkur á þessu hérna í körfuboltafjölskyldunni á Íslandi. Þetta er ótrúlegur árangur hjá liðinu og óskum við þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Við viljum sérstaklega óska Snæfellingunum okkar Sigga Þorvalds og Hlyn Bærings innilega til hamingju og óskum þeim alls hins besta á fyrsta stórmóti íslenska karlaliðsins.

Ég get ekki hætt að hugsa um hversu stórbrotinn árangur þetta er!
Það eru allir í skýjunum.

Ég mæli með að allir kíkji á www.karfan.is og lesi um allt sem gerðist í gær og í undankeppninni. Þar er frábær umfjöllun eins og alltaf.

Myndina á Páll Bárðarson (Hólmari)

GS