Stelpurnar í dag – Strákarnir á morgun!
Liðin okkar eru komin á fleygiferð í deildinni, Stelpurnar fá Valskonur í heimsókn kl. 19:15 í kvöld (miðvikudag) og Strákarnir okkar fá Hauka í heimsókn kl. 19:15 annað kvöld (fimmtudag).
Stelpurnar eru komnar með tvo sigra í deildinni og ekki enn tapað. Þær ætla sér að halda því áfram og langar að hefna fyrir tapið í bikarnum um daginn.
Strákarnir byrjuðu vel og unnu sinn fyrsta leik í deildinni á móti Fjölnismönnum, þeir fá geysi sterkt lið Hauka í heimsókn annað kvöld og mun það án efa verða athyglisverður leikur. Liðin hafa verið í jöfnum leikjum síðast liðin ár og mun það ekki breytast í ár.
Við hvetjum alla stuðningsmenn Snæfells að mæta á leikina og hjálpa liðunum okkar að vinna þessa erfiðu leiki sem eru framundan!
Áfram Snæfell