http://snaefell.is/wp-content/uploads/2015/01/Slide1-4.pngBikarveisla á laugardaginn!

Bikarveisla á laugardaginn!

Það má með sanni segja að það verði slegið til veislu í íþróttahúsinu á laugardaginn, bikarinn er alltaf sú keppni sem öll lið vilja vinna, úrslitaleikur í hverri umferð. Snæfellsliðin eru engin undantekning þar á, þau vilja fara alla leið í ár.

Tveir bikarleikir verða spilaðir sama daginn og ekki af lakari gerðinni, stelpurnar fá Val í heimsókn og strákarnir fá Tindastól í heimsókn. Þú getur keypt þig inn á báða leikina fyrir 2000 kr. en ætlir þú aðeins á annan leikinn er sama verð og vanalega 1500 kr.

Við vonumst til að sjá sem flesta á leikjunum báðum…

Áfram Snæfell

Slide1-4