Stelpurnar í 7. flokk á Flúðum

Stelpurnar í 7. flokk á Flúðum

Stelpurnar í 7. flokk fóru núna um helgina á flúðir og spiluðu þrjá leiki þar í B. riðli. Lagt var af stað á laugadagsmorgni í frekar slæmu verði en allt gekk vel að komast á Flúðir. Fyrsti leikur var við Hrunamenn/Hamar talsverður hæða munur var á þessum tveimur liðum en Hrunamenn/Hamar unnum 35:8. Næsti leikur var við Tindastól, þessi lið hafa tekist nokku sinnum á í B. riðli, hafa Tindastóllmenn unnið síðustu leiki en þeir leikir voru mjög spennandi. Að þessu sinni unnu Snæfell 23:16. Greinilegt var að æfingarnar í vetur hafa verið að skila árangri enda hefur hann Austin Magnus Bracey staði sig vel í að þjálfa þær. Þriðji leikurinn var við Hött frá Egilsstöðum þessi lið hafa ekki spilað áður saman en leikurinn fór 42:13 fyrir Snæfell. Næsta mót verður 18. – 19. apríl.