Leikur 1 nálgast

Leikur 1 nálgast

11178635_1098749770139003_1697891554_n

Loksins, loksins segja allir!

Úrslitaeinvígið er að byrja á morgun, Snæfells stelpurnar sigruðu Grindavík 3-1 í undanúrslitum og mæta klárar til leiks á morgun (miðvikudag). Þær fá Keflavík í heimsókn í fyrsta leik og það er óþarfi að fara yfir það hversu mikilvægur þessi leikur er.

Það skiptir öllu máli að byrja á sigri og ætlum við (stuðningsfólk) að sjá til þess að stelpurnar okkar fái sem mesta stuðning sem völ er á. Búum til myndarlega stemmningu og hvetjum þær til sigurs.

Lið Keflavíkur er gríðarlega vel skipað og unnu þær Lele Hardy og félaga í Haukum 3-0 í hinni undanúrslita viðureigninni. Það má því búast við hörku rimmu á morgun.

Sjáumst í stúkunni! Þetta eru jú Finals!!!

Áfram Snæfell