http://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/01/20160119-Gunnhildur-001.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/01/20160119-Gunnhildur-001.jpgGunnhildur Gunnarsdóttir Íþróttamaður Snæfells 2015

Gunnhildur Gunnarsdóttir Íþróttamaður Snæfells 2015

Stjórn UMF Snæfells afhenti Gunnhildi verðlaun nú á dögunum en hún var kosin Íþróttarmaður Snæfells 2015.

Formaður UMF Snæfells, Hjörleifur K. Hjörleifsson, ávarpaði viðstadda og gerði grein fyrir valinu:

„Gunnhildur Gunnarsdóttir er fædd 17. Ágúst 1990 en hún er fædd og uppalin í Hólminum. Hún varð Íslandsmeistari með liðinu okkar í vor þar sem hún var með 12.1 stig að meðaltali í leik, 5.1 frákast og 2.8 stoðsendingar.

Gunnhildur Gunnarsdóttir var valin í úrvalslið fyrri umferðar Dominosdeildarinnar og einnig seinni umferðar á síðasta ári. Gunnhildur var í úrvalsliði KKÍ og er lykilmanneskja í A-landsliði Íslands sem hefur staðið sig vel.

Gunnhildur er þekkt fyrir að vera mjög góður varnarmaður sem gefur ekkert eftir og spilar leiki sína af lífi og sál. Hún hefur mikla leiðtoga hæfileika og því var það við hæfi að hún tæki við fyrirliðabandinu af Hildi Sig sem lagði skóna á hilluna með glæsibrag síðastaliðið vor og hefur Gunnhildur staðið sig mjög vel í því hlutverki og fer vel með það.

Gunnhildur Gunnarsdóttir æfir mjög mikið og er öðrum leikmönnum hvatning til að æfa enn betur. Gunnhildur hefur fengið sinn skerf að meiðslum og hefur hún stigið uppúr erfiðum meiðslum í sumar og núna í lok vetrar, ekkert stoppar þessa kjarna íþróttakonu og er hún sannarlega vel að því komin að vera kosin íþróttamaður Snæfells.

Gunnhildur er leikmaður sem á eftir að láta verkin tala í framtíðinni fyrir Körfuknattleiksdeild Snæfells.“

Til hamingju Gunnhildur!
Áfram Snæfell!