http://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/01/12471748_10153815940115119_8458552735558556947_o-150x150.jpgÖruggur sigur ufl.flokks kvenna

Öruggur sigur ufl.flokks kvenna

Stelpurnar okkar í unglingaflokki sigruðu Hamarsstúlkur 53-71 eftir að hafa verið yfir 24-38 í hálfleik. Rebekka Rán var stigahæst með 23 en næst var Sara Diljá Sigurðardóttir með 20 og rúmlega 20 fráköst.

Andrea Björt lék ekki með í kvöld vegna veikinda og Theódóra Ægisdóttir vantaði líka.

Snæfellsstelpurnar voru hikandi í byrjun en þær náðu fljótt áttum og stjórnuðu leiknum. Allir leikmenn fengu góð tækifæri í leiknum.

Flottur sigur en nóg er að gera í landsleikjahléinu.

Leikja dagskrá unglingaflokks kvenna er eftirfarandi:
Fös 19 feb Keflavík heima kl 19:30
Sun 21 feb Haukar heima kl 17:30
Þri 23 feb Grindavík heima kl 19:30
Fös 26 feb Fjölnir úti kl 20:00
Lau 27 feb Keflavík úti 17:00

Stigaskor í leiknum: Rebekka 23, Sara Diljá 20, Anna Soffía 19, Silja Katrín 5, Kristín Birna 4 Lísbet Rós 3, Aníta Ýr 0, Hrafnhildur 0, Emilía Ósk 0.