Uppskeruhátíð yngriflokka körfuknattleiksdeildar

Uppskeruhátíð yngriflokka körfuknattleiksdeildar

Uppskeruhátíð yngriflokka körfuknattleiksdeildar verður haldin miðvikudaginn 18. maí kl. 18:00 í Íþróttamiðstöðinni.

Allir iðkendur fá umsögn frá sínum þjálfurum og veitt verðlaun í þeim flokkum sem spiluðu Íslandsmótið í vetur.

Strax að lokinni verðlaunaafhendingu verður boðið upp á grillaðar pylsur fyrir hópinn.
Þeir sem vilja geta svo að lokum skellt sér í íþróttafatasund.