http://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/06/13509695_10154228755379593_640035293_o-1024x768.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/06/13509695_10154228755379593_640035293_o-1024x768.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/06/13509695_10154228755379593_640035293_o-1024x768.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/06/13509695_10154228755379593_640035293_o-1024x768.jpgViktor Marínó Alexandersson framlengir við Snæfell

Viktor Marínó Alexandersson framlengir við Snæfell

Bakvörðurinn spræki Viktor Marínó Alexandersson samdi í dag við körfuknattleiksdeild Snæfells og er samningurinn til eins árs. Viktor Marínó stóð sig ljómandi á síðustu leiktíð með Snæfell. Viktor Marínó var með 5.2 stig að meðaltali í leik en hann kom sterkur inní lið Snæfells og óx ásmegin þegar á tímabilið leið.

Viktor Marínó var í 22 manna hóp U20 (´96&´97) en kappinn er staðráðinn að koma sér í betri stöðu á þeim bænum á næsta ári.

Þessi snarörvhenti leikmaður tekur við kefli team örvhentra í Snæfellsliðinu en þar fóru fremstir Nonni Mæju og Pálmi Freyr.