http://snaefell.is/wp-content/uploads/2015/12/12227580_10153691414220119_309092315382499284_n.pnghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2015/12/12227580_10153691414220119_309092315382499284_n.pngÁrni Elmar Hrafnsson til liðs við Snæfell

Árni Elmar Hrafnsson til liðs við Snæfell

Unglingalandsliðsmaðurinn Árni Elmar Hrafnsson hefur undirritað eins árs samning við Snæfell fyrir keppnistímabilið 2016-2017. Árni Elmar er uppalinn Fjölnismaður og er fæddur 1998. Þessa stundina er kappinn á leið til Makedóníu með U18 karla liði sem urðu Norðurlandameistarar í Finnlandi fyrr í sumar.

Árni Elmar flytur í Hólminn og mun stunda nám við FSn í Grundarfirði ásamt því að leika með félaginu. Árni Elmar er ungur og sprækur bakvörður sem á eftir að njóta sín í Stykkishólmi.

Snæfell bíður Árni Elmar innilega velkominn í liðið og hlakkar til að vinna með honum.