http://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/07/dominosdeildin_logo1.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/07/dominosdeildin_logo1.jpghttp://snaefell.is/wp-content/uploads/2016/07/dominosdeildin_logo1.jpgTaylor Brown gengur til liðs við Snæfell

Taylor Brown gengur til liðs við Snæfell

Íslands- og Bikarmeistarar Kvennaliðs Snæfells hafa ráðið amerískan leikstjórnenda Taylor Brown en hún lék með George Mason háskólanum. Taylor lék þar í þrjú ár en hún hóf sinn háskólaboltaferil hjá Georgetown. Taylor skoraði 15.4 stig, gaf 3.3 stoðsendingar og tók 3.8 fráköst í leik.

Taylor var há metin hjá Bishop McNamara high skólanum þar sem hún var fyrirliði.

Von er á Taylor fljótlega til landsins og fyllir hún stöðu Haidens Palmer sem á dögunum skrifaði undir hjá þýska toppliðinu Herner TC. Fyrsti leikur Haiden verður gegn Kristen McCarthy og félögum í Freiburg.