Anna Soffía frá í óákveðinn tíma vegna höfuðhöggs
Bakvörðurinn Anna Soffía Lárusdóttir hefur ekkert æft síðan hún skall saman við Rögnu Margréti Brynjarsdóttir í leik gegn Stjörnunni 3. febrúar síðastliðinn og er óvitað hvenær hún getur hafið æfingar á ný.
Körfuknattleiksdeildin óskar Önnu góðs gengis í sínu ferli og vonast til að sjá hana á gólfinu sem fyrst.