Magni íþróttamaður HSH 2006

Ingvaldur Magni Hafsteinsson, leikmaður úrvalsdeildarliðs Snæfells, var í kvöld útnefndur körfuknattleiksmaður HSH 2006 og í framhaldinu íþróttamaður HSH 2006. Ingvaldur er einn af máttarstólpum Snæfellsliðsins og var m.a. valinn besti varnarmaður íslandsmótsins í fyrra. Einnig var piltur valinn í fimm manna úrvalslið tímabilsins, af leikmönnum og þjálfurum hinna úrvalsdeilarliðanna. Magni er fyrirmynd annara innan sem utan vallar og er vel að þessari útnefningu kominn. Við óskum Magna til hamingju með að vera íþróttamaður HSH 2006.