Sannfærandi sigur á liði Breiðabliks B

Meistaraflokkur kvenna vann sannfærandi sigur á liði Breiðabliks B laugardaginn 3. febrúar sl. í Smáranum en leikurinn fór 32-68 Snæfelli í vil.

Meistaraflokkur kvenna vann sannfærandi sigur á liði Breiðabliks B laugardaginn 3. febrúar sl. í Smáranum en leikurinn fór 32-68 Snæfelli í vil.

Snæfell er áfram í 4 .sæti deildarinnar með 16 stig eins og Ármann/Þróttur og aðeins 2 stigum á eftir liðum Fjölnis og KR sem skipa 1. og 2. sætið. Einnig má geta þess að Snæfell er í 2. sæti í skoruðum stigum í deildinni með 696 skoruð stig en KR leiða með 702 skoruð stig.

Næsti leikur er á föstudaginn 9. febrúar kl. 19.15 hér heima á móti KR og er mikilvægt að fá góðan stuðning í þeim leik þannig að stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna á pallana.

Nánar um stöðuna í deildinni hér.