Snæfell heimsækir stólana i kvöld

Í kvöld hefst 19. umferð Iceland Expressdeildarinnar. Við Snæfellingar höldum til Sauðárkróks og heimsækjum Tindastól. Fyrri deildarleikur liðanna endaði 108-85 fyrir Snæfell og væri óskandi að við næðum álíka leik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 og er um að gera að skella sér á Krókinn og hvetja strákana til sigurs.