Snæfell sigraði Grindavík

Snæfell sigraði Grindavík 83-74 eftir stórskemmtilegan leik í Fjárhúsinu í gærkveldi. Grindvíkingar byrjuðu leikinn betur, en Snæfellingar náð svo undirtökunum og héldu þeim þar til lokaflautið gall. Stigahæstir í liði Snæfells voru Justin (25), Magni (20). Hjá Grindavík voru þeir Páll Axel og Jonathan Griffin báðir með 20 stig. Umfjöllun um leikinn og myndir má nálgast á heimasíðu Stykkishólmspóstsins. Einnig var pósturinn með beina lýsingu á seinni hálfleik og er tengill á hana hér.