Keflavík – Snæfell, leikur 2

Annar leikurinn í einvígi Snæfells og Keflavíkur fer fram á morgun Laugardag kl.16:00 í Sláturhúsi þeirra síðarnefndu. Þetta verður orusta upp á líf og dauða og ætla stuðningsmenn Snæfells að fjölmenna í bítlabæinn. Við hvetjum fólk til að sameinast í bíla og vera duglegt að láta boð berast um laus pláss, því ljóst er að færri komast en vilja. Styðjum okkar menn alla leið, því það getur riðið baggamuninn þegar upp verður staðið.

Áfram Snæfell