Siðareglur Snæfells

Markmið félagsins með siðareglum er að veita félagsmönnum sínum almennar leiðbeiningar í leik og starfi. Þær eru hluti af þeim anda sem á að vera ríkjandi í félaginu og þurfa að njóta almenns stuðnings meðal félagsmanna. Siðareglurnar skulu vera hvetjandi og leiðbeinandi í senn og skal kynna öllum félagsmönnum.

Reglurnar eru ekki eingöngu leiðbeinandi heldur getur brot á þeim haft í för með sér refsingu, allt eftir alvarleika brots.


Foreldri/forráðamaður, hafðu ávallt hugfast að:

  1. Barnið þitt er í íþróttum vegna eigin ánægju en ekki til að gleðja þig.
  2. Hvetja barnið þitt til þátttöku í íþróttum, ekki þvinga það.
  3. Hrósa öllum iðkendum á meðan æfingu, leik eða keppni stendur, ekki aðeins þínu barni.
  4. Hvetja börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Ekki gera grín að barni eða hrópa að því ef mistök eiga sér stað.
  5. Virða  rétt hvers barns, óháð kyni, kynstofni eða trúarbrögðum.
  6. Börn læra mest af því að framkvæma. Lærðu að meta góða frammistöðu allra barna í hópnum.
  7. Vera börnum fyrirmynd í því að taka ósigri af æðruleysi, taka sigri hrokalaust og sýna mótherjum kurteisi.
  8. Bera virðingu fyrir störfum þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans meðan á leik eða keppni stendur.
  9. Líta á dómarann sem leiðbeinanda barna, ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
  10. Spyrja barnið hvort keppnin eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
  11. Læra að meta þátttöku sjálfboðaliða hjá félaginu því án þeirra hefði barnið þitt ekki möguleika á að stunda æfingar og keppni með félaginu.
  12. Taka vel í þegar þú ert beðinn um aðstoð af félaginu og vera virkur þátttakandi í verkefnum sem snúa að rekstri félagsins.

 



Iðkendur á öllum aldri – Þú ættir að:

  1. Gera alltaf þitt besta.
  2. Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
  3. Taka þátt í íþróttum á eigin forsendum en ekki vegna þess að foreldrar þínir eða þjálfari vilja það.
  4. Sýna öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
  5. Forðast þrætur eða deilur við dómara og aðra starfsmenn leiksins/mótsins. Virtu ákvarðanir þeirra.
  6. Sýna öðrum virðingu og vera heiðarlegur og opinn gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins sem ber ábyrgð á þér við æfingar og keppni.
  7. Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um mótherja, samherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
  8. Koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
  9. Mæta á réttum tíma á æfingar, keppnir eða annað sem viðkemur félaginu.

 



Að auki fyrir eldri iðkendur  – Þú ættir að:

1. Hafa heilbrigði alltaf að leiðarljósi. Forðast að taka áhættu varðandi heilsu þína með því að neyta ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.

  1. Bera virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra. Forðast neikvæð ummæli og skammir óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð
  2. Vera  heiðarlegur og opinn í samvinnu við þjálfara og aðra sem styðja þig.
  3. Taka sjálfur höfuðábyrgð á framförum þínum og þroska.
  4. Vera ávallt til fyrirmyndar varðandi framkomu og hafa ávallt hugfast að þú er fyrirmynd yngri iðkenda jafnt utan vallar sem innan.
  5. Samþykkja aldrei eða sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
  6. Forðast náin samskipti við þjálfara þinn.
  7. Sýna ávallt öðrum virðingu, jafnt í meðbyr sem mótbyr.

 



Þjálfari:

  1. Meðhöndlaðu alla iðkendur á einstaklingsgrunni og á þeirra eigin forsendum. Hafa ber í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
  2. Styrktu jákvæða hegðun, framkomu og gagnrýni. Byggðu upp á jákvæðan hátt.
  3. Sjáðu til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda með tilliti til aldurs, reynslu og hæfileika.
  4. Haltu á lofti heiðarleika innan íþróttarinnar.
  5. Viðurkenndu og sýndu virðingu þeim ákvörðunum sem dómarar taka.
  6. Fáðu iðkendur til að vera með í ákvörðunum sem tengjast þeim. Kenndu þeim að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
  7. Vertu jákvæður, réttlátur, umhyggjusamur og heiðarlegur gagnvart iðkendum þínum.
  8. Settu ávallt á oddinn heilsu og heilbrigði iðkenda þinna og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað gæti heilbrigði þeirra.
  9. Talaðu alltaf gegn neyslu áfengis, tóbaks og notkunar ólöglegra lyfja.
  10. Sýndu athygli og umhyggju þeim iðkendum sem orðið hafa fyrir meiðslum.
  11. Leitaðu samstarfs við aðra þjálfara og sérfræðinga þegar þess þarf og viðurkenndu rétt iðkandans til að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
  12. Samþykktu aldrei ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
  13. Beittu aldrei kynferðislegri áreitni né vertu í nánu samband við iðkanda þinn.
  14. Taktu aldrei að þér akstur yngri iðkenda, hvorki á leiki né æfingar, nema með leyfi foreldra.
  15. Forðastu samskipti gegnum síma og Internetið nema til boðunar æfinga og upplýsingagjafar.
  16. Vertu meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
  17. Komdu eins fram við alla iðkendur, óháð kyni, kynþætti, stjórnmálaskoðunum, trúarbrögðum og kynhneigð.
  18. Notfærðu þér aldrei aðstöðu þína sem þjálfari til að uppfylla eigin áhuga á kostnað iðkandans.
  19. Forðastu að koma þér í þá aðstöðu að vera einn með iðkanda nema um fyrirfram ákveðina æfingu sé að ræða.

 



Stjórnarmaður/starfsmaður:

  1. Stattu vörð um anda og gildi félagsins og sjáðu um að hvort tveggja lifi áfram meðal félagsmanna.
  2. Hafðu ávallt í huga að í félaginu er verið að byggja upp fólk.
  3. Komdu fram við alla félagsmenn sem jafningja, óháð kyni, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, litarhætti og kynhneigð.
  4. Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
  5. Haltu félagsmönnum vel upplýstum og gerðu félagsmenn að þátttakendum í ákvarðanatöku eins og hægt er.
  6. Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan.
  7. Taktu alvarlega þá ábyrgð sem þú hefur gagnvart félaginu og iðkendum.
  8. Farðu ávallt að lögum og reglum við rekstur félagsins.
  9. Notfærðu aldrei stöðu þína hjá félaginu til eigin framdráttar á kostnað félagsins eða félagsmanna.
  10. Taktu og beittu gangrýni á jákvæðan hátt.

 



Við biðjum stuðningsmenn félagsins að:

  1. Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um mótherja, samherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
  2. Líta á dómarana sem leiðbeinendur, ekki gagnrýna ákvarðanir þeirra á óviðeigandi hátt.
  3. Viðhafa jákvæða gagnrýni.
  4. Samþykkja aldrei að sýna ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.

 



Aðalstjórn/aga og siðanefnd getur beitt eftirfarandi viðurlögum við brotum á siðareglum félagsins allt eftir alvarleika brots:

  1. Tiltal
  2. Áminning.
  3. Tímabundinn brottvikning
  4. Brottrekstur