Njarðvík – Snæfell
Strákarnir halda til Njarðvíkur á morgun og etja þar kappi við heimamenn. Snæfell er í harðri baráttu við ÍR um sæti í úrslitakeppninni, með sigri á morgun er það orðið ljóst að sætið verður okkar.
Þetta er næst síðasti deildarleikurinn í vetur og er ekki seinna vænna en að skella sér á leik og styðja sína menn. Myndum stemmningu í Ljónagryfjunni í Njarðvík á fimmtudaginn og tryggjum okkur í úrslitin.
Áfram Snæfell