Okkar fólk verðlaunað
Á blaðamannafundi KKÍ dag var tilkynnt úrvalslið Dominos-deildar kvenna fyrir síðari hluta tímabilsins.
Það kom fáum á óvart að Lele Hardy, leikmaður Hauka, skildi vera valinn besti leikmaður síðari hluta mótsins en hún hefur reyndar farið á kostum í allan vetur.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari deildarmeistara Snæfells, var valinn besti þjálfarinn og Íris Ásgeirsdóttir Hamri var valinn dugnaðarforkurinn.
Úrvalslið síðari hluta Dominos-deildar kvenna:
Hildur Sigurðardóttir, Snæfell
Lele Hardy, Haukar
Sigrún Ámundadóttir, KR
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfell
Heimasíða Snæfells óskar verðlaunahöfum kærlega til hamingju.
Áfram Snæfell
Efri mynd – Stefán kki.is
Neðri mynd – karfan.is
grein tekin af visir.is