Tímabilið á enda hjá stelpunum

mars 25, 2026

Þór Akureyri vann sigur á Snæfelli, 89–72, í 1. deild kvenna í Höllinni á Akureyri.

Leikurinn var nokkuð jafn í upphafi en Þórsarar leiddu 25–19 eftir fyrsta leikhluta. Munurinn jókst jafnt og þétt og þegar leið á seinni hálfleikinn var ljóst hvert stefndi. Þór náði mest 21 stigs forskoti og landaði að lokum þægilegum sigri.

Stórleik átti Chloe W. sem skoraði 29 stig og tók 19 fráköst í afar öflugri frammistöðu. Þá var Yvette Danielle A. einnig frábær með 26 stig og Emilie R. bætti við 10 stigum og 4 stoðsendingum. Liðið sýndi góða nýtingu í skotum, sérstaklega innan teigs þar sem það skoraði 42 stig.

Hjá Snæfelli var Anna Soffía stigahæst með 24 stig og Haiden Denise P. bætti við 12 stigum og 9 stoðsendingum. Liðið átti þó erfitt með skotnýtingu.

Ítarlegri tölfræði: https://fibalivestats.dcd.shared.geniussports.com/u/KKI/2669168/bs.html

Þá er tímabilinu lokið hjá stelpunum sem sýndu flottan körfubolta í vetur og sáu áhorfendum fyrir góðri skemmtun. Liðið er góð blanda af ungum, efnilegum leikmönnum og reynslumeiri leikmönnum sem gaman var að sjá aftur á gólfinu. Þær sem rifu skóna af hillunni eiga hrós skilið og sýndu að þær hafa engu gleymt. Það má líka hrósa öllu liðinu því stemninginn virtist mjög góð og var gaman á leikjum liðsins í vetur.

Snæfell endar í 6. sæti deildarinnar og má þar vel við una, fyrsta tímabil þjálfarans Haiden Palmer að baki og framhaldið lofar góðu hjá kvennakörfu Snæfells.

Lokastaðan í deildinn: https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/Deildir-flokkar?league_id=231

FRÉTTIR

Fylgstu með nýjustu fréttum Snæfells!

Skráning í Snæfell

Smelltu á takkann til þess að skrá barnið þitt í Snæfell

Styrkja SNÆFELL

Hvert framlag skiptir máli og hjálpar að skapa tækifæri fyrir íþróttafólkið okkar. Ef þú vilt spjalla frekar, geturðu sent okkur tölvupóst hér!