Tveir leikir í dag

Tveir leikir í dag

Það verður nóg að gera hjá körfubolta unnendum í dag. Dagurinn verður tekinn snemma hjá 11. flokk karla þegar þeir mæta Tindastól í hörku leik.
Sá leikur byrjar klukkan 12:00 og er spilaður hérna í Hólminum.

Síðari leikurinn er svo stórleikur Snæfells og Keflavíkur í Dominosdeild karla. Við hvetjum alla til þess að mæta og hjálpa liðinu í úrslitakeppnis-gírinn. Bæði lið vilja að sjálfsögðu koma með sigur á bakinu inn í úrslitakeppnina.

Nóg að gera eins og alltaf fyrir stuðningsfólk og körfubolta unnendur, sjáumst á vellinum.
Áfram Snæfell