Snæfell mætir Skallagrím í Lifetrack/Hofland mótinu!
Meistaraflokkur karla er búinn að leika 2 æfingaleiki í svokölluðu Lifetrack/Hofland mótinu og spilar gegn Skallagrím kl 16:30 í Vallaskóla…

Snæfell hefur framlengt samning sinn við Eyþór José Eyþórsson fyrir komandi tímabil.
Eyþór er ungur og efnilegur leikmaður sem hefur tekið miklum framförum á síðustu árum. Hann hefur góðan leikskilning, les leikinn vel og leggur sig alltaf fram fyrir liðið. Þá hefur hann einnig sýnt stöðugar framfarir í sínum leik.
Fyrir utan hæfileika sína á vellinum er Eyþór frábær liðsfélagi sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið bæði innan sem utan vallar. Slíkir leikmenn eru afar mikilvægir fyrir uppbyggingu og menningu liðsins.
Við erum afar ánægð með að Eyþór verði áfram hluti af hópnum og bindum vonir við að hlutverk hans stækki enn frekar á komandi tímabili.