
Snæfell hefur samið við hinn 22 ára gamla bandaríska bakvörð Cooper Jackson fyrir komandi tímabil.
Cooper kemur til félagsins frá Eastern New Mexico University þar sem hann lék með Greyhounds liðinu og vakti athygli fyrir fjölhæfan leik sinn. Hann er leikmaður sem getur bæði skorað, skapað fyrir liðsfélaga sína og haft áhrif á leikinn á báðum endum vallarins. Cooper býr yfir góðum leikskilningi, mikilli orku varnarlega og jákvæðu hugarfari sem við teljum að muni nýtast liðinu vel.
Við hjá Snæfelli erum mjög spennt að fá Cooper til liðs við okkur og hlökkum til að sjá hann klæðast Snæfellsbúningnum í fyrsta sinn. Við teljum að hann muni falla vel inn í þann hraða og liðsheild sem við viljum byggja upp og vera mikilvægur hlekkur í okkar verkefni á komandi tímabili.
Velkominn í Stykkishólm og til Snæfells, Cooper!
Myndband af Cooper: https://www.youtube.com/watch?v=69i7CNEQW-Q