Leikur 2 hjá Stelpunum!

Leikur 2 hjá Stelpunum!

Í kvöld mætast Snæfell og Valur öðru sinni í undanúrslitum Dominosdeildar kvenna. Leikurinn er á Hlíðarenda í Reykjavík og byrjar stundvíslega klukkan 19:15. Við hvetjum stuðningsfólk okkar til að fjölmenna á leikinn og styðja Stelpurnar í þessum mikilvæga leik. Það er að verða ljóst að þær verða án mikilvægra leikmanna í leiknum og þá kemur ykkar frábæri stuðningur að góðum notum. Sjáumst í Vodafonehöllinni í kvöld og komum Snæfell í 2-0!

Þeir sem ekki komast á leikinn er bent á að leikurinn er sýndur á Stöð 2 sport.

Tökum á þessu! Áfram Snæfell, alltaf, alls staðar!