Ekki með…með (uppfært)

Ekki með…með (uppfært)

Þær stöllur Chynna Unique Brown og Hugrún Eva Valdimarsdóttir munu ekki leika með Snæfell í kvöld. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Snæfellsliðið. Heimasíðan heyrði í Inga Þór rétt í þessu og sagði hann að ástand leikmannana væri það sama og í gær. Mikil óvissa er um framhaldið og allir séu að leggja sitt að mörkum til að láta batann vera góðan. Chynna er byrjuð í meðferð við sínum meiðslum en Hugrún kemst vonandi í segulómskoðun sem fyrst, áður en það gerist er ekkert hægt að gera nema bíða og sjá.

Stelpurnar þjappa sér saman og eru tilbúnar í allt í kvöld, að lokum biðlar Ingi Þór til sinna stuðningsmanna á höfuðborgarsvæðinu að mæta og vera með læti. Við þurfum á öllum að halda sagði hann er hann geystist yfir Vatnaleiðina á rauðu þrumunni.

Stelpurnar mæta Val eins og allir vita í Vodafonehöllinni kl. 19:15 í kvöld! Sjáumst þar.

*UPPFÆRT
Snæfell fékk liðsstyrk rétt fyrir leik, Þær Berglindi Gunnarsdóttur og Helgu Margréti Þorsteinsdóttur (systir Guðrúnar Gróu). Sjáum hvað setur.
Áfram Snæfell

mynd – Eyþór Ben.