Upplýsingapóstur fyrir foreldra/forráðamenn 2026 – 2027
Hér að neðan má sjá upplýsingapóst fyrir foreldra og forráðamenn, þar má sjá upplýsingar um æfingagjöld, hvernig þú skráir barnið…

Erik Nói Gunnarsson hefur skrifað undir samning við Snæfell og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Erik Nói er 22 ára gamall leikmaður sem kemur til Snæfells frá Fylki, en er uppalinn hjá Haukum. Hann kemur inn í öflugan og metnaðarfullan leikmannahóp og verður góð viðbót við lið Snæfells.
Erik Nói er fjölhæfur leikmaður með góðan leikskilning sem getur lagt sitt af mörkum á báðum endum vallarins. Hann kemur með mikla orku, baráttuvilja og vinnusemi sem mun klárlega hjálpa liðinu.
Við hjá Snæfell erum mjög ánægð með að fá Erik Nóa til liðs við okkur og hlökkum til að sjá hann taka næstu skref á sínum ferli.
Velkominn í Snæfell, Erik Nói!