
Meistaraflokkur karla er búinn að leika 2 æfingaleiki í svokölluðu Lifetrack/Hofland mótinu og spilar gegn Skallagrím kl 16:30 í Vallaskóla á Selfossi 20. september og er leikurinn um 3. sætið í mótinu.
Strákarnir hófu leik gegn Fjölni og fór sá leikur 79 – 75 fyrir Fjölnismönnum þar sem Keylane Lassissi skoraði 20 stig, meira um þann leik hér https://www.karfan.is/fjolnir-lagdi-snaefell-i-fyrsta-leik-a-lifetrack-hofland-motinu/?fbclid=IwY2xjawUZFWlwZG9mBWV4dG4DYWVtAjExAHNydGMGYXBwX2lkEDIyMjAzOTE3ODgyMDA4OTIAAR5XlBnnVfBWg2HOk9FzsTX0dQAwlWU4H4NE4gvizo1arWVRyGOkvOvwsWAMlw_aem_QOKe8o4V_6Z63O2VSw4vww

Strákarnir spiluðu svo við Selfoss í og sóttu sigur 79-82.
Mikil barátta einkenndi leikinn og sáust framfarir frá fyrsta æfingaleik.

Minnum á heimaleik 25. september – þá vonumst við til að fá okkar stuðningsfólk á völlinn því við þurfum að undirbúa tímabilið á gólfinu og í stúkunni.

